Algjört siðleysi

Það er svo greinilegt að það er verið að reyna að bæta Gísla Marteini upp tekjumissi við námið.  Hann skal vera á fullum launum í náminu!

Ég veit það bara að ef ég ætlaði mér að fara í nám þá þyrfti ég að fara annað hvort í launalaust frí eða sækja um námslán og segja upp núverandi starfi mínu.  Sjálfstæðisflokkurinn er hér svo greinilega búinn að sýna sitt rétta andlit með þessum klíkuska.

Ég hélt að Gísli Marteinn væri heiðarlegur og réttsýnn maður, en hér er hann tilbúinn að ganga eins langt og hann getur í siðleysinu til þess að halda sinni sneið.  Svona menn eru ónýtur pappír í mínum huga og munu ekki eiga minn stuðning í framtíðinni.

Ég tek undir með einum vini mínum þar sem hann segir "Til þess að vera góður pólitíkus þarftu að vera bæði siðlaus, útsmoginn og umfram allt hafa góð sambönd við fólk af sama sauðahúsi"

 

Svei þér Gísli Marteinn og flokkurinn allur. 


mbl.is Gísli Marteinn fær launahækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband